23.8.2009 | 10:44
Frábært framtak
Það er hálf sárt að sjá að fólkið í landinu þarf sjálft að sjá um að refsa þjófunum sem stálu sparifé Evrópu og létu okkur um að borga brúsann. Um leið er það þó mjög ánægjulegt að til séu menn sem nenni að standa í því að láta þjófana finna fyrir því að fólki sé ekki sama.
Ef sérstaki saksóknarinn og ríkisstjórnin fara ekki að sýna fólki með ótvíræðum hætti að eitthvað sé verið að gera til að draga þessa menn til ábyrgðar þá auðvitað brýst reiði fólks út og á bara eftir að magnast.
|
Málningu úðað yfir bíl Björgólfs |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Guttar veifandi viskípelum
- Allir hafa skilað inn listum
- Trassaskapurinn kemur við pyngjuna
- Atkvæðagreiðslan öllum í hag
- Ölvaðir ökumenn stöðvaðir
- Með kannabis og maríjúana
- Útihátíðir sem manndómsvígslur
- Vilja funda með sendiherra Þýskalands
- Boot Camp fær að flytja í Elliðaárdalinn
- „Á ekki heima í sömu kosningu“
- Jón styður tillögu Vigdísar
- Dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir rán
- Verða að skila listum fyrir kl. 13
- Ísland sjöunda atriðið á svið
- Sjö tilboð bárust í háspennustrengi
Erlent
- Lifði af fall niður Niagara fossana
- Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
Fólk
- Óhugnaður frægðarinnar
- Minningartónleikar færðir í Þjóðleikhúsið
- Reykjavík Music Mess kveður Nasa
- Veruleikaþáttur um Casper Smart
- The Wicked Strangers vestur um haf
- Raflost og Steina í Hafnarhúsinu
- Píanótónleikar í Norræna húsinu
- Ósiðlegir tónleikar
- Listaverk glaumgosa fyrir metfé
- Segir söguna alla í nýrri mynd
- „Það má dúndra“
- Veldur hún starfinu?
- Áttræðar babúskur í Bakú
- Birta sýnishorn úr Skyfall
- Sunnlendingar á Ólympíuleikum


vefritid
Athugasemdir
það sem einkennir þessa "aðgerðasinna" og greinilega þinn hugsanagang líka er skortur á greind og skynsemi, ég er ekki mjög hrifin af þessum aðgerðum því jú ég borga þetta á endanum þvi auðvitað eru þessir bílar og hús tryggð, og hver á orðið tryggingarfélögin ? jú fólkið í landinu svo þessir kjánar eru bara mígandi í skóinn sinn!!
Gunnar Þór Gunnarson (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 10:51
Kæri Gunnar, eftir því sem ég best veit þá borga tryggingar ekki fyrir þrif á bílum og húsum.
argur, 23.8.2009 kl. 11:15
Nei, en þær borga fyrir skemmdarverk.
Pétur (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 11:19
þetta eru miklu meira en þrif, ef þeir vildu bara að þeir þyrftu að þrífa myndu þeir bara nota egg eða eitthvað...þetta er meiriháttar aðgerð að hreinsa svona (ef það er hægt, fer eftir gerð málingarinnar) þá er þetta 100% tryggingarmál og ÞÚ borgar!
Gunnar Þór Gunnarson (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 11:30
Frábært framtak? Hvað ertu eiginlega gamall? Hvernig sérðu að slík aðgerð hjálpi við að refsa þessum mönnum? Þetta eru bara skemmdarverk og hefur ekkert með refsingu að gera! Að mínu mati má bera þá saman við glæpamenn sem kveikja í bílum og skemma eigur annarra, af því bara. Það endar með að þeir 'mála sig út í horn' og hafa ekkert út úr þessum aðgerðum annað en 'málningar'blett á mannorðinu fyrir skemmdarverk. Hver ber virðingu fyrir svoleiðis mönnum?
Hrefna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 11:33
Það er í besta lagi barnaskapur að fagna þessu og kalla það frábært framtak. Tryggingar bæta skemmdarverk af þessu tagi og hverjir borga iðgjöldin aðrir en almennir borgarar, fórnarlömb útrásarvíkinganna?
Bjarni (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 11:51
Mér finnst þetta frábært framtak, tek ofan fyrir málurum!
Kolla (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 13:44
Þið sem eruð að tuða. Af hverju röflið þið ekki frekar yfir því að gjaldþrota auðjöfur sé akandi um á flottum hömmer. Það væri löngu búið að taka hann af ykkur ef þið væruð gjaldþrota.
Óli (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 14:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.